Planið var alltaf að flytja á laugardaginn en þá fékk gullmolinn
okkar (híhí) hita á föstudag svo við ákváðum sunnudag í staðinn. En
þá brast á óveður á sunnudag. Þá var þriðjudagurinn málið því
aldrei á víst að flytja á mánudegi því hann er til mæðu...
En þá
spáði svo slæmu seinni part þriðjudags einmitt þegar við værum að
flytja. Svo bentu margir í vinnunni mér á (þau eru nebbla öll í
eldri kantinum...) að þriðjudagurinn væri sá 13. og það væri slæmt
að flytja þann dag !!! Hjátrú, kellingabækur og vitleysa en samt
hugsar maður alltaf út í þetta
Tek það samt fram að við hættum
við þriðjudag vegna skítaveðurs, ekki vegna hjátrúar. Svooooo er
tengdó með afmælisveisluna sína í dag, miðvikudag, svo að planið er
að flytja á morgun. Spennan felst í hvort það gangi upp, á reyndar
ekki að vera neitt frábært veður en meðan það verður ekki stormur
þá ÆTLA ég að flytja 
Jæja, verð nú að setja inn eitthvað um dúlluna okkar. Hún er
farin að segja nokkuð mörg orð eins og mamma, babba, úa (húfa), mea
(meira), búa (búið), gekka (drekka), ava (afi), ta di da (takk
fyrir mig) og eitthvað fleira. Svo reynir hún stundum að segja það
sem maður er að reyna að fá hana til að segja en ef hún kann ekki
að gera hljóðin í orðinu(eins og í Þórdís) surgar hún það
stunum í gegn einhvern vegin í kokinu. Veit ekki alveg hvernig ég á
að útskýra
Alla vega algör snillingur og
dúlla